Við leitum að jákvæðri og þjónustulundaðri manneskju í hlutverk
Séní í notendaþjónustu
. Starfið felur í sér að veita áreiðanlega, skilvirka og faglega tæknilega aðstoð við Nova liðið og verslanir.
Sem Séní í notendaþjónustu muntu sinna fjölbreyttum verkefnum sem tryggja að tæknibúnaður og vinnuumhverfi starfsfólks sé alltaf í toppstandi og að upplifun notenda sé hnökralaus.
Helstu verkefni og ábyrgð
* Uppsetning, viðhald og þjónusta á tækjum og tólum starfsfólks.
* Umsjón með aðgangsmálum, leyfum og búnaðarkaupum
* Tryggja að tölvubúnaður og tæki í verslunum séu í fullu lagi
* Uppsetning, viðhald og prófanir á fundarbúnaði og búnaði í fundarherbergjum
* Dagleg samskipti og tæknileg aðstoð við innri notendur
* Samskipti og eftirfylgni við birgja og þjónustuaðila
* Þátttaka í umbóta- og þróunarverkefnum innan teymisins
Menntunar- og hæfniskröfur
* Menntun sem nýtist í starfi, t.d. á sviði upplýsingatækni (kostur en ekki skilyrði)
* Reynsla af notendaþjónustu eða tæknilegum stuðningi
* Góð þekking á Office 365, Active Directory og helstu notendabúnaði
* Færni í uppsetningu og viðhaldi tölvu- og jaðarbúnaðar
* Góð samskiptahæfni, þjónustulund og lausnamiðuð nálgun
* Skipulögð, nákvæm og sjálfstæð vinnubrögð
* Sveigjanleiki, jákvæðni og frumkvæði
* Kostnaðarmeðvitund og ábyrgð í innkaupum og ákvarðanatöku
* Sterkur áhugi á tækni og vilji til að þróast í starfi
Hjá Nova starfa um 160 dansarar sem kappkosta alla daga við það að veita framúrskarandi þjónustu. Við státum ekki einungis af
ánægðustu viðskiptavinunum
á farsímamarkaði sextán ár í röð heldur einnig
ánægðustu dönsurunum
þar sem við höfum hlotið nafnbótina
Fyrirtæki ársins
fjórum sinnum og verið
fyrirmyndar fyrirtæki
á vegum VR í 16 ár. Mikið er lagt upp úr sveigjanleika, liðsheild og góðum starfsanda. Svo elskum við að skora á okkur sjálf - og hvert á annað
Smelltu hér
og kíktu baksviðs hjá Nova ef þú vilt vita meira og af hverju þú ættir að vinna hjá Nova.