Við leitum að framúrskarandi skemmtilegum tæknifulltrúa til að taka með okkur dansinn í tækniþjónustu Nova Starfið er draumur í dós fyrir þau sem hafa óbilandi áhuga á tækni og þróun. Góðir samskiptahæfileikar, bullandi þjónustulund, jákvæðni og sjálfstæð vinnubrögð eru lykilþættir fyrir starfið. Brennandi áhugi og haldbær reynsla af snjalltækjum, tölvubúnaði og nýjustu tækni gæti mögulega komið þér fram fyrir í röðinni.
Helstu verkefni og ábyrgð
Starfið Felur Meðal Annars í Sér
* Símasvörun tækniþjónustu fyrirtækja.
* Greining og úrlausn tæknilegra mála.
* Vöktun og viðbragð vegna bilana.
* Fylgjast með nýjungum, leggja til og miðla áfram þekkingu og reynslu fyrir símtæki og endabúnað.
Menntunar- og hæfniskröfur
Tæknimenntun æskileg
Viðkomandi þarf að geta hafið störf 24. september.
Við hjá Nova leggjum mikið upp úr því að starfsfólk fái tækifæri til að fræðast, eflast og vaxa&dafna - bæði í starfi en ekki síður sem einstaklingar Um er að ræða
fullt starf
til framtíðar og við erum að leita eftir aðila sem getur tekið dansinn með okkur sem fyrst
Hjá Nova starfa um 160 dansarar sem kappkosta alla daga við það að veita framúrskarandi þjónustu. Við státum ekki einungis af
ánægðustu viðskiptavinunum
á farsímamarkaði sextán ár í röð heldur einnig
ánægðustu dönsurunum
þar sem við höfum hlotið nafnbótina
Fyrirtæki ársins
fjórum sinnum og verið
fyrirmyndar fyrirtæki
á vegum VR í 16 ár. Mikið er lagt upp úr sveigjanleika, liðsheild og góðum starfsanda. Svo elskum við að skora á okkur sjálf - og hvert á annað
Hlökkum til að heyra frá þér